Book Bowen Session
Bowen therapy
Verð: 12.500 ISK 50 mínútur
Bowen therapy is a remedial hands-on therapy, very gentle yet effective treatment that works on meridian lines of the body. After the session, the body will continue to make necessary changes, realign and settle into healthier patterns. It is safe to use on anyone, from new-borns to elderly and for musculoskeletal allergies, arthritis, stress, digestive problems to related neuromuscular complaint.
Bowen therapy is not an on-going therapy. You may experience relief after the first session and significant recovery within three sessions. Book a session spiritualjourneyiceland@gmail.com Price 12.500 ISK
Hvað er Bowen meðferð?
Bowentækni er bandvefslosunarmeðferð og er ekki sambærileg við neina aðra líkamsmeðferð sem stunduð er í heiminum í dag. Því er erfitt að skilgreina hana með venjulegum hugtökum. Nafnið Bowen kemur frá Ástralanum Thomas A. Bowen, sem þróaði þessa áhrifaríku og heildrænu líkamsmeðferð. Hún er einföld, mjúk og áhrifarík meðferð sem vakið hefur mikla athygli víðsvegar um heim.
Bowentæknin er aðallega græðandi meðferð og felst í röð mjúkra hreyfinga yfir vöðva, sinar og aðra mjúka vefi og losar spennu sem hefur byggst upp, líkamlega og eða andlega. Bowentæknirinn notar fingurna á ákveðin svæði og beitir mildum þrýstingi til þess að koma hreyfingu á vöðva og vefi. Við það fer í gang ferli í bandvef líkamans til að laga það sem í ólagi er og halda öllu í réttu jafnvægi.
Með bandvefslosunartækni er losað um spennu og við það verður verkjalosun og endurnýjun á orku. Bowentæknirinn meðhöndlar líkaman sem heild en meðhöndlar ekki harða líkamsvefi, notar ekki nudd eða olíur, djúpan langvarandi þrýsting né áhöld af nokkru tagi. Bandvefurinn heldur líkamanum saman og er gríðarlega sterkt en misþykkt efni.
Hann er alls staðar í líkamanum, umlykur öll líffæri, æðar, taugar, alla vöðva, tengir þá við bein og er fylliefni milli líffæra. Það sem er líka svo sérstakt við bandvefinn er að hann er heill / óslitinn frá hvirfli til ilja.
Það eitt hefur varpað fram þeirri spurningu hvort við séum með 600+ vöðva í líkamanum eða aðeins einn í 600+ slíðrum / pokum af bandvef. Áhrifin af meðferðinni er mjúk, nær djúpt og er afslappandi. Þess vegna er bowentæknin svo sérstök.
Osteopatar, hnykkjarar, sjúkraþjálfarar eru meðal annars þeirra mörgu starfsstétta sem nota bowentæknina. Allir þeir sem nota þessa meðferð, furða sig á áhrifamætti þessarar mjúku og einföldu meðferðar.
Bowentæknir getur meðhöndlað alla óháð aldri. Sjá meira um útskýringar á bowen meðferð á heimasíðu Bowen https://bowen.is/
Bóka tíma senda email: spiritualjourneyiceland@gmail.com
Verð: 12.500 ISK 50 mínútur
Spiritual Journey Iceland