Hreinsaðu huga og líkama

Hreinsaðu huga og líkama
Date/Time
20/11/2015to22/11/2015
Categories

Þér er boðið í innra kyrrðarferðalag sem fer að mestu fram í þögn. Lára Marteinsdóttir leiðbeinir gjörhygli-hugleiðslu æfingum. Á milli hugleiðslu stunda, iðkum við styrkjandi Hatha jóga æfingar með Ólafíu Wium jógakennara. Halla Himintungl, löggildur maganuddari, býður upp á hreinsandi kínverskt maganudd sem losar um innri tilfinningahnúta, kvíða, vanlíðan, ótta, vantraust ofl. Farið verður í svitahofsstund þar sem þátttakendum býðst að fara dýpra inn á við í eigin sjálfshreinsun.

Nánari upplýsingar:

Staðsetning: Eyrarkot í Hvalfirði sjá nánari staðsetningu á www.eyrarkot.is

Hefst: Föstudaginn kl. 17:00 / laugardaginn kl. 06.45 / sunnudaginn kl. 07.15

Hámarks þátttaka: 20 vinsamlega athugið einungis 9 þátttakendur geta bókað sig í gistingu og dvelja í Eyrarkoti föstudags og laugardagsnótt, morgunverður innifalinn.

Stjórnendur: Halla Himintungl veitir kínverskt maganudd og leiðir Innra bros hugleiðsla, Lára Marteinsdóttir leiðir hugleiðslu og Ólafía Wium leiðir Hatha jóga

Gisting: 2 nætur fös og laug. Mæting milli 17 – 18.00 á fös

Námskeiðsslit/Brottför: kl. 17.00 á sun.

Verð er tvískipt hægt er að velja að gista í Eyrarkoti eða keyra heim á milli námskeiða daga

Verð með gistingu 2 nætur 20.000 kr, – innifalið: morgunverður, kínverskt maganudd einkatímar, jóga hóptímar, hugleiðsla hópur, svitahofsstund hópur og sameiginlegur kvöldverður á laugardagskvöldi.  Þátttakendur mæta á föstudeginum milli kl 17 – 18.

Verð án gistingu 2 dagar 15.000 kr – innifalið: jóga, hugleiðsla, svitahofsstund og sameiginlegur kvöldverður á laugardagskvöldi. Þátttakendur mæta á laugardagsmorgni kl. 6.45 og aftur á sunnudegi kl. 07.15.

Tilhögun skráningar: Greiða verður 5.000  af skráningargjaldi fyrir 3. Nóvember 2015 restina af þátttökugjaldi ber að greiða eigi síðar en 19. Nóvember.

Taka með á námskeið:

Þátttakendur sem gista 2 nætur koma með: hádegisverð fyrir 2 daga (laug og sun) og 1 kvöldverð (föstudagskvöld) 2 handklæði, sundföt,  jógadýnu, teppi og púða til að sitja á.

Þátttakendur sem mæta í dagsprógram laugardag og sunnudag koma með: hádegisverð fyrir 2 daga (laug. og sun.)  jógadýnu, sundföt, handklæði, teppi og púða til að sitja á.

Um leiðbeinendur námskeiðsins:

LaraLára Marteinsdóttir er kvikmyndagerðarkona og kennari við Háskóla Íslands sem breytti um stefnu í lífi sínu eftir kvikmyndanám í California Institute of the Arts, N-Ameríku, eftir að hún sat hugleiðslukúrs í norður Kaliforníu árið 2001. Hún starfaði og bjó á hugleiðslusetri í Englandi frá 2009 til 2011, þar sem hún stundaði Búddíska innsæishugleiðslu (Vipassana), einbeitingar hugleiðslu (Anapana) og kærleikshugleiðslu (Metta). Láru finnst gott að eldast og lifa í sátt og samlyndi við allt og alla. Hún hefur fundið innri sátt við lífið einsog það er og er öll af vilja gerð að deila gleðinni og rónni sem finnst með innhverfri íhugun, sem leiðir til    hamingjuríkara hugarfars og frelsi frá óþarfa þjáningu.

 

OlafiaÓlafia Wium er Hatha jóga kennari og heilari. Hún hefur verið áhugamaður um uppbyggingu andlegrar ferðaþjónustu hér á Íslandi um langt árabil. Ólafia stefnir á að stofna eigin ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í þjónustu við ferðamenn sem hafa síaukinn áhuga á gjörhygli og núvitund og tengingu andlegrar og líkamlegrar heilsu í náttúrulegu umhverfi.

 

 

HallaHalla Himintungl hefur stundað heildræna heilun síðan 1996. Hún hefur unun af því að læra og viða að sér meiri þekkingu um heilun og að rækta hana á uppbyggilegan hátt fyrir hjarta, líkama og sál. Halla er menntaður stjörnuspekingur, Reiki Meistari, Dáleiðari, Bowen meðferðaraðili og Chi Nei Tsang maganuddari. Halla er einnig leiðsögumaður og rekur fyrirtækið Spiritual Journey. Halla starfar sem heilari bæði hérlendis og erlendis í lúxus heilsulindum eins og Chiva-Som í Hua Hin Thailand, Six Senses spa, Jumereiah spa í Bolifushi á Maldives, Lifeco Detox center í Bodrum í Turkey, Sunset Pearl í Sádi Arabiu.

 

Fróðleikur um kínverskt maganudd:

Magasvæðið er að segja má heili númer tvö í líkama okkar. Í kínversku maganuddi losar Halla um tilfinningahnúta og neikvæða orku út úr meltingarkerfinu. Nuddið kemur hreyfingu á meltinguna og hjálpar líkamanum að afeitra  eða ,,detoxa“ eiturefnum og fitu af magasvæðinu. Maganuddið  grennir, heilar og kemur jafnvægi á andlega og líkamalega líðan.

Greiðist inn á bankareikning
Banki: 0133-26-50750
Kt. 660615-0750


Bookings

Bookings are closed for this event.

Loading Map....